Norðurlöndin: Sävehof deildarmeistarar í Svíþjóð
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Kvennalið Sävehof tryggði sér deildarmeistaratitilinn í Sænsku úrvalsdeildinni í gær þegar liðið vann sinn fjórða leik í röð en liðið er nú með sex stiga forskot á Önnereds sem á bara tvo leiki eftir og getur því ekki náð liðinu.

Lokatölurnar í leiknum gegn Hallby í dag voru 36-25 en Elín Klara Þorkelsdóttir var sem fyrr í liði heimakvenna. Hún skoraði fjögur mörk úr sjö skotum þar af voru tvö mörk úr vítum en hún bætti við einni stoðsendingu.

Kristianstad hélt áfram sínu skriði á toppnum í karladeildinni en liðið vann góðan heimasigur á Guif, 24-18. Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði þrjú mörk úr fimm skotum, gaf eina stoðsendingu og fékk eina brottvísun að auki. Kristianstad eru á toppi deildarinnar með 38 stig, tveimur stigum á undan Malmö en bæði lið eiga þrjá leiki eftir fyrir úrslitakeppni.

Beint eftir kvennaleikinn var komið að karlaliði Sävehof sem tók á móti Malmö í hörkuleik en bæði lið eru ofarlega í töflunni. Birgir Steinn Jónsson var ekki í liði heimamanna að þessu sinni og hans var sárt saknað því gestirnir sóttu tvö stig til Partille og unnu að lokum 29-32 útisigur og halda pressunni áfram á Kristianstad.

Úrslit laugardagsins:

Sävehof 36-25 Hallby

Kristianstad 24-18 Guif

Sävehof 29-32 Malmö

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top