Sex íslensk mörk í dramatískum sigri
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Íslensku stelpurnar í þýska úrvalsdeildarliðinu, Blomberg Lippe unnu ótrúlegan eins marks útisigur á Bensheim/Auerbach 29-28 í gærkvöldi.

Fyrirfram var búist við hörkuleik en liðin sátu í 2. og 3.sæti deildarinnar fyrir leikinn. Blomberg-Lippe hafði tveggja marka forystu í hálfleik 15-13. Liðið náði mest fjögurra marka forystu í seinni hálfleik í stöðunni 20-16 en þá kom slæmur kafli hjá liðinu.

Bensheim/Auerbach jafnaði metin í stöðunni 23-23 og komst í kjölfarið yfir 24-23. Liðin skiptust á að vera með forystuna en Blomberg-Lippe reyndist sterkari aðilinn undir lokin og unnu að lokum eins marks sigur 29-28.

Andrea Jacobsen skoraði þrjú mörk og gaf þrjár stoðsendingar, Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði tvö mörk og gaf fimm stoðsendingar og Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði síðan eitt mark í leiknum.

Framundan er landsleikjatörn hjá stelpunum en íslenska landsliðið leikur tvívegis gegn Svartfjallalandi. Fyrri leikurinn fer fram á Ásvöllum á miðvikudaginn klukkan 18:00.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top