Gunnar Magnússon þjálfari karlaliðs Hauka náði sögulegum áfanga á laugardagskvöldið að verða bikarmeistari í þriðja sinn með þremur mismunandi félagsliðum. Því afreki náði hann þegar Haukar unnu ÍR með sjö mörkum 28-21 í úrslitaleik Powerade-bikarsins sem fram fór á Ásvöllum. Gunnar varð síðast bikarmeistari sem þjálfari Aftureldingar tímabilið 2022/2023 þegar liðið vann Hauka í spennuþrungnum leik, lokatölur í þeim leik urðu 28-27 og þá varð hann einnig bikarmeistari sem þjálfari ÍBV tímabilið 2014/2015. Þann leik vann ÍBV einnig með einu marki en ÍBV vann FH 23-22 árið 2015. Gunnar er fyrsti þjálfarinn á Íslandi til að vinna bikarkeppni karla með þremur mismunandi liðum en tveir þjálfarar hafa unnið bikarkeppni kvenna með þremur mismunandi liðum. Það eru þeir Gústaf Adolf Björnsson með Fram, Víking og Haukum og Stefán Arnarson núverandi þjálfari Hauka en hann hefur orðið bikarmeistari með með Val, Fram og Haukum. Hann varð bikarmeistari með Haukum á síðustu leiktíð en tapað á laugardaginn gegn Val í úrslitaleik Powerade-bikarsins. Rætt var um bikarúrslitaleikina í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.