Í nýjasta þætti Handkastsins var rætt um stöðu Arons Pálmarssonar sem á dögunum kom inn í þjálfarateymi FH í Olís-deild karla og er aðstoðarþjálfari Sigursteins Arndals. Hann gerði þó einungis samning út þetta tímabil. Arnar Daði Arnarsson þáttastjórnandi Handkastsins spurði gesti Handkastsins, þá Ásgeir Gunnarsson og Sigurjón Friðbjörn Björnsson hvort þeir gerðu ráð fyrir því að Aron yrði áfram aðstoðarþjálfari FH á næsta tímabili en bæði Ásgeir og Sigurjón þjálfa hjá fimleikafélaginu. ,,Gerið þið ráð fyrir því að Aron Pálmarsson verði áfram aðstoðarþjálfari FH á næstu leiktíð? Það hlýtur að hafa mikil áhrif fyrir unga leikmenn að vilja koma í FH vitandi af Aroni sem aðstoðarþjálfara liðsins. Hafið þið eitthvað heyrt um það?” spurði Arnar Daði gestina en umræðan kom í kjölfar þess að Ágúst Guðmundsson leikmaður HK er sagður vera á leið í Kaplakrikann í sumar. ,,Ég hef ekkert heyrt en maður sér hann mæta á allar æfingar og virðist vera all-in í þessu og spenntur fyrir þessu. Ef tímabilið endar vel þá geri ég ekki ráð fyrir öðru en að hann verði áfram," sagði Ásgeir Gunnarsson. ,,Ég held að hann sé að prófa þetta og ef honum líkar vel við þetta þá verður hann áfram. Ég held að þetta snúist um það," bætti Sigurjón Friðbjörn við en frekar var rætt um þetta í upphafi Handkastsins. FH verður í eldlínunni í Olís-deild karla í kvöld þegar liðið fær Aftureldingu í heimsókn í Kaplakrika klukkan 19:00 en fjórir leikir fara fram í 20.umferð Olís-deildarinnar í kvöld.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.