Haukarnir sigu fram úr síðustu 10 mínúturnar og innbyrtu góðan sigur
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Í dag mættust Haukar 2 og HK 2 á Ásvöllum í Grill 66 deild karla.

Leikurinn fór fjörlega af staðan en HK liðið var alltaf skrefi á undan fyrsta korterið og var staðan eftir 15 mínútur 8-11. Áfram héldu HK-ingar að hafa frumkvæðið seinni part fyrri hálfleiks og var staðan 21-23 í lok fyrri hálfleiks. Gríðarlega mikið skorað eins og tölurnar gefa til kynna.

HK byrjaði mjög sterkt í seinni hálfleik og náðu strax 5 marka forskoti eftir nokkurra mínútna leik. Það var ekki fyrr en 12 mínútur voru eftir af leiknum að Haukarnir náðu í fyrsta skipti að jafna leikinn í stöðunni 32-32. Fór það svo að Haukarnir voru mun beittari og beinskeyttari síðustu mínútur leiksins og unnu að lokum 39-35. Góður endurkomusigur hjá þeim.

Hjá Haukum var Daníel Máni Sigurgeirsson markahæstur með 12 mörk. Ari Dignus varði 9 skot.

Hjá HK var Styrmir Hugi Sigurðarson markahæstur með 7 mörk. Markmenn HK þeir Patrekur og Patrekur vörðu samtals 7 skot.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top