
Í dag mættust Víkingur og Selfoss 2 í Grill 66 deild karla en leikið var í Safamýri. Strax frá upphafi leiks var ljóst að Víkingar voru að fara að klára leikinn á sannfærandi hátt. Eftir korters leik var staðan 11-5. Áfram hélt þetta á þessum nótum. Selfyssingar voru ekki á deginum sínum og voru aldrei nálægt því að ógna Víkingum. Í hálfleik var staðan 21-12 fyrir Víking. Í seinni hálfleik var það sama upp á teningunum. Eina spurningin var bara hversu stór sigurinn yrði hjá heimamönnum. Víkingar enduðu á því að kafsigla Selfyssingana og unnu að lokum með 11 marka mun. 39-28 urðu lokatölur. Víkingar enn einu skrefi nær að fara upp í Olís deildina. Hjá Víking var markvarslan samtals með 15 bolta varða. Sigurður Páll og Kristján Helgi voru báðir með 6 mörk hvor. Hjá Selfyssingum voru 4 leikmenn með 4 mörk. Markvarslan skilaði aðeins 6 boltum vörðum. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.