Heimaleik Ísraels frestað
UWE ANSPACH / dpa Picture-Alliance via AFP

Handknattleikssamband Evrópu, EHF hefur tekið þá ákvörðun að fresta fyrirhuguðum leik milli Ísraels og Grikklands í undankeppni Evrópumóts kvenna 2026 sem átti að fara fram í Rishon-Le-Zion í Ísrael annað kvöld. 

Þjóðirnar eiga síðan að mætast aftur á sunnudaginn þá í Grikklandi klukkan 11:00. Óvissa ríkir enn um það hvort sá leikur fari fram. Ísrael og Grikkland eru bæði án stiga í sínum riðli eftir tvær umferðir en Austurríki og Spánn eru með fullt hús stiga.

EHF segir í tilkynningu sinni að ekki sé hægt að öryggja öryggi keppnisliðanna í Ísrael um þessar mundir vegna átaka en Ísrael og Bandaríkin hófu árásir á Íran um helgina.

Ísland mætti ísraelska landsliðinu í forkeppni heimsmeistaramótsins í tveimur leikjum á Ásvöllum fyrir luktum dyrum. Íslenska landsliðið vann báða leikina nokkuð sannfærandi og tryggði sér sæti á heimsmeistaramótinu í kjölfarið.

Ísland tekur á móti Svartfjallalandi í sínum riðli annað kvöld klukkan 18:00 og fer sá leikur fram á Ásvöllum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top