Einar Rafn yfirgefur KA eftir tímabilið
Egill Bjarni Friðjónsson

Spilandi aðstoðarþjálfari KA, Einar Rafn Eiðsson mun yfirgefa félagið í sumar og flytja suður ásamt fjölskyldu sinni. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið.

Einar Rafn gekk í raðir KA fyrir tímabilið 2021/2022 og er því á sínu fimmta tímabili með KA en hann varð markakóngur Olís-deildarinnar með KA tímabilin 2022/2023 og 2023/2024 en þá varð hann einnig markakóngur í Olís-deildinni er hann lék með FH tímabilið 2015/2016.

Einar Rafn varð spilandi aðstoðarþjálfari KA í sumar en hann fór í aðgerð í sumar og er kominn á fullt með KA liðinu sem féll úr leik í undanúrslitum Powerade-bikarsins í síðustu viku. KA verður í eldlínunni á föstudagskvöldið þegar liðið heimsækir Stjörnuna í Heklu-höllina í lokaleik 20.umferðar.

Samkvæmt heimildum Handkastsins hafa Hafnarfjarðarliðin, Haukar og FH bæði heyrt í Einari Rafni og sýnt honum áhuga. En í samtali við Handkastið sagði Einar Rafn að framtíðin hans væri enn óljós og ekkert fast í hendi. Hann væri þó staðráðinn í því að halda áfram að spila fyrir sunnan ef tækifæri býðst.

Einar Rafn er uppalinn í Haukum en fór ungur að árum til Fram og lék þar í nokkur ár áður en hann skipti yfir í FH. Þaðan gekk hann síðan í raðir KA sumarið 2021.

Birkir Benediktsson hægri skytta FH rennur út af samningi í sumar. FH hefur einnig verið orðað við Ágúst Guðmundsson leikmann HK.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top