Bikarmeistarinn, Ólafur Ægir Ólafsson hægri skytta Hauka í Olís-deild karla hefur framlengt samningi sínum við félagið til ársins 2028. Ólafur Ægir sem er uppalinn hjá Gróttu hefur á ferlinum leikið með Fram, Val og Haukum auk þess sem hann lék með Lakers Stäfa í Sviss í eitt tímabil. Hann varð meðal annars Íslandsmeistari með Val tímabilið 2016/2017. Ólafur Ægir sem er fæddur árið 1995 gekk í raðir Hauka sumarið 2019 er hann því á sínu sjöunda ári hjá félaginu. Hann hefur nú framlengt samningi sínum til tveggja ára. Ólafur fór mikinn í undanúrslitaleik Hauka gegn FH í Powerade-bikarnum og var þar markahæsti leikmaður Hauka í leiknum með sjö mörk. Hann hafði síðan hægt um sig í úrslitaleiknum og skoraði tvö mörk úr fimm skotum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.