Bikarmeistarinn, Hergeir Grímsson leikstjórnandi Hauka í Olís-deild karla hefur framlengt samningi sínum við félagið til ársins 2028. Hergeir sem er uppalinn á Selfossi gekk til liðs við Hauka sumarið 2024 og er á sínu öðru tímabili með Haukum en eldri samningur hans við Hauka átti að renna út í sumar. Hann gekk í raðir Hauka frá Stjörnunni en hann varð Íslandsmeistari með Selfossi vorið 2019 eftir ótrúlegt úrslitaeinvígi gegn Haukum. Hergeir sem er fæddur árið 1997 hefur verið í minna hlutverki í liði Hauka í ár eftir að Gunnar Magnússon tók við liðinu en hinn ungi og efnilegi, Freyr Aronsson hefur eignað sér leikstjórnanda stöðuna hjá liðinu. Þrátt fyrir það hafa bikarmeistararnir framlengt samningi sínum við Hergeir sem átt flotta innkomu í bikarúrslitaleiknum gegn ÍR á dögunum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.