Gerir ekki ráð fyrir Degi Árna í næstu leikjum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ágúst Jóhannsson þjálfari topplið Vals í Olís-deild karla gerir ekki ráð fyrir að Dagur Árni Heimisson leikmaður Vals leiki með liðinu í þremur síðustu leikjum liðsins í Olís-deildinni.

Dagur Árni hefur ekkert leikið með Val á nýju ári en hann hefur verið að glíma við þrálát hnémeiðsli frá því síðasta sumar. Dagur sagði í samtali við Handkastið í byrjun febrúar að hann vonaðist til að geta leikið á nýjan leik sem fyrst. Það hefur hinsvegar ekki gengið eftir.

,,Dagur Árni er enn að glíma við sín meiðsli og hefur ekkert náð að æfa með liðinu að undanförnu. Það er þétt leikið síðustu umferðirnar svo ég geri ekki ráð fyrir honum í síðustu leikjum deildarinnar," sagði Ágúst Jóhannsson í samtali við Handkastið en Valur fær Íslands- og bikarmeistara Fram í heimsókn í 20.umferð Olís-deildarinnar annað kvöld. Dagur Árni var keyptur til Vals í sumar frá KA á metfé.

Valur fær síðan HK í heimsókn á mánudagskvöldið í næst síðustu umferðinni áður en liðið fer til Vestmannaeyja og mætir þar ÍBV í lokaumferðinni.

Valur er með þriggja stiga forskot á toppi Olís-deildarinnar með 30 stig en FH er í 2.sætinu með 27 stig.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top