Elín Klara í liði mánaðarins í Svíþjóð
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Landsliðskonan, Elín Klara Þorkelsdóttir leikmaður deildarmeistara Savehof í Svíþjóð sem verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu á Ásvöllum í kvöld er í úrvalsliði mánaðarins í sænsku úrvalsdeildinni, annan mánuðinn í röð.

Þetta er í þriðja sinn sem Elín Klara er valin í úrvalslið mánaðarins í deildinni en hún gekk í raðir Savehof í sumar frá uppeldisfélagi sínu Haukum.

Elín Klara er fjórði markahæsti leikmaður í sænsku úrvalsdeildarinnar með 124 mörk í 19 leikjum.

Í úrvalsliði mánaðarins eru tveir liðsfélagar Elínar þær Stina Wiksfors línumaður og Kim Molenaar í vinstri skyttunni. Savehof vann alla fjóra leiki sína í deildinni í febrúar og tryggði sér í síðustu umferð deildarmeistaratitilinn þrátt fyrir að liðið eigi enn þrjá leiki eftir.

Savehof er á toppi deildarinnar með 34 stig en Onnereds er í 2.sætinu með 28 stig. Onnereds hefur hinsvegar leikið einum leik meira.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top