Sex leikir fóru fram í undankeppni Evrópumóts kvenna í kvöld en leikur Ísraels og Grikklands var frestað af pólítískum ástæðum. Íslenska landsliðið vann frækinn eins marks sigur á Svartfjallalandi 28-27 og í sama riðli vann Færeyjar fjögurra marka sigur á Portúgal 25-21 á heimavelli. Færeyjar eru því komnar með fjögur stig í riðlinum, jafn mörg stig og Svartfjallaland. Í Austurríki vann Spánn fimm marka sigur 29-24 en Spánn er með fullt hús stiga í riðlinum. Austurríki er með fjögur stig en Ísrael og Grikkland eru án stiga. Svíþjóð vann góðan þriggja marka sigur á Serbíu í Serbíu 29-26 en Úkraína og Litháen mætast í sama riðli annað kvöld. Í riðli þrjú fóru fram tveir leikir, Þýskaland vann sjö marka sigur á Slóveníu 30-23 á útivelli en Þýskaland var einu marki yfir í hálfleik 15-16. Að lokum vann Belgía nauman eins marks sigur á Norður-Makedóníu 26-25. Belgía komst í fyrsta skipti yfir í leiknum í stöðunni 25-24 og svo aftur 26-25 sem reyndust lokatölur leiksins. Úrslit kvöldsins:
Ísland - Svartfjallaland 28-27
Færeyjar - Portúgal 25-21
Belgía - Norður-Makedónía 26-25
Slóvenía - Þýskaland 23-30
Serbía - Svíþjóð 26-29
Austurríki - Spánn 24-29
Ísrael - Grikkland (Leik frestað)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.