Fjórir leikir fóru fram í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í gær. Áttum við Íslendingar 7 fulltrúa í eldlínunni. Janus Daði Smárason var markahæstur með 7 mörk í tapi Pick Szeged gegn GOG. Vann danska liðið 34-37 sigur. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 4 mörk í tapi Kolstad gegn Dinamo Bucuresti, 33-23. Benedikt Gunnar Óskarsson var einnig mættur aftur í lið Kolstad eftir að hafa glímt við meiðsli en honum tókst ekki að skora. Sigurjón Guðmundsson varði 3 skot í markinu hjá norska liðinu. Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í Barca urðu fyrsta liðið til þess að vinna SC Magdeburg í Meistardeildinni í vetur er þeir unnu 29-36 sigur eftir að staðan hafði verið jöfn 16-16 í hálfleik. Viktor varði 2 skot og var með um 18% markvörslu. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 5 mörk fyrir Magdeburg og Ómar Ingi Magnússon skoraði 3. Þá unnu HBC Nantes 33-31 sigur á One Veszprém þar sem Kauldi Odriozola var markahæstur með 7 mörk fyrir franska liðið en Ahmed Hesham Elsayed Moham gerði 7 mörk fyrir Veszprém. Bjarki Már Elísson var ekki í liði Veszprém í kvöld en hann glímir við meiðsli.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.