Bjartsýnn á endurkomu Bjarna og Morten á næstunni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Andri Snær Stefánsson þjálfari KA var spurður út í stöðuna á Bjarna Ófeigi Valdimarssyni og Morten Boe Linder eftir sigur liðsins gegn Stjörnunni á föstudagskvöldið en KA vann 17 marka sigur á Stjörnunni 21-38 í lokaleik 20. umferðar Olís-deildar karla.

Báðir meiddust þeir í leik KA gegn Val um miðjan febrúar en Bjarni lék þó með KA í undanúrslitum Powerade-bikarsins en Morten Boe Linder hefur ekkert spilað frá Vals leiknum.

,,Bjarni og Morten eru báðir meiddir og við þurfum að vera skynsamir og viljum ekki vera að þvinga einu né neinu. Heldur viljum við keyra á þeim mönnum sem eru virkilega klárir og leyfa þeim að jafna sig. Við erum með meiri breidd en margir halda," sagði Andri en KA fær FH í heimsókn í KA-heimilið í kvöld klukkan 19:30.

,,Bjarni er að ná sér góðum og við viljum bara hafa hann heilann. Það er stutt í það en við viljum passa upp á hann í stað þess að vera hjakkast á honum. Það styttist í hann og vonandi kemur hann til baka sem allra fyrst," sagði Andri en næst var hann spurður út í endurkomu Morten Boe Linder.

,,Það styttist í Morten en hann er ekki farinn að æfa almennilega en er á leiðinni. Ég er mjög bjartsýnn á að hann verði klár í úrslitakeppninni.”

KA er í 4.sæti Olís-deildarinnar fyrir síðustu tvær umferðirnar með 26 stig. Eins og fyrr segir fær liðið FH í heimsókn í kvöld og mætir síðan Þór í nágrannaslag fyrir norðan á fimmtudagskvöldið.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top