Stjarnan tilkynnti í lok febrúar um þjálfaraskipti á karla liði félagsins fyrir næstu leiktíð. Hrannar Guðmundsson verður ekki áfram þjálfari liðsins en hann hefur stýrt liðinu síðustu þrjú tímabil. Sverrir Eyjólfsson hefur verið ráðinn þjálfari liðsins frá og með næsta tímabili en hann kom inn sem aðstoðarþjálfari liðsins í byrjun janúar. Hvorki gengur né rekur hjá liði Stjörnunnar í Olís-deildinni sem eru með 10 stig í 11.sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir. Liðið tapaði á heimavelli á föstudaginn í lokaleik 20.umferðar með 17 mörkum gegn KA, 21-38. Hrannar var spurður í viðtali eftir leik um breytingarnar hjá sér og Stjörnuliðinu eftir tímabilið. ,,Ég er búinn að vera í Stjörnunni í fimm ár og lét þá vita í lok janúar, byrjun febrúar að ég vildi breytingar hjá mér sjálfum. Það var bara ástæðan, ég er hrikalega þakklátur fyrir þau tækifæri sem ég hef fengið hjá Stjörnunni. Ég vil bara fara sjá eitthvað nýtt og prófa eitthvað nýtt," sagði Hrannar sem var spurður að því hvað tæki við hjá sér í þjálfun. ,,Ég er ekki kominn með neitt annað en ég efast um að ég taki mér frí frá handbolta," sagði Hrannar. Stjarnan er í 11.sæti Olís-deildarinnar með 10 stig og hefur tapað níu leikjum í röð. Stjarnan mætir ÍR í Skógarselinu í 21.umferð Olís-deildarinnar annað kvöld þegar heil umferð fer fram. Stjarnan á enn tölfræðilegan séns á að ná Stjörnunni en þremur stigum munar á liðunum fyrir síðustu tvær umferðirnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.