Það var nóg um að vera á Norðurlöndunum í dag en lítið er eftir af hefðbundinni deildarkeppni í öllum deildum og mikil spenna á toppi og botni. Fimm Íslendingalið voru í eldlínunni í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Við byrjum yfirferðina í Danmörku en þar fengu Ribe-Esbjerg það erfiða verkefni að reyna vera fyrsta liðið til að taka stig af meisturunum í Álaborg. Heimamenn í Esbjerg voru flottir í fyrri hálfleik og staðan nokkuð óvænt jöfn, 14-14 í hálfleik. En þá sýndu meistararnir styrk sinn og náðu snemma í seinni hálfleiknum forskoti sem heimamenn náðu ekki að yfirstíga, þeir reyndu að jafna leikinn en að lokum unnu gestirnir þriggja marka sigur og eru því áfram fullkomnir í deildinni með tuttugu og þrjá sigra eftir tuttugu og þrjár umferðir. Elvar Ásgeirsson átti erfitt uppdráttar í skotunum í dag en hann skoraði tvö mörk úr átta skotum en hann bætti upp fyrir það með því að skila sex stoðsendingum fyrir liðið. TTH Holstebro unnu góðan útisigur á Mors-Thy í miklum markaleik, 37-38. Jóhannes Berg Andrason var næstbestur í liði gestanna frá Holstebro en hann klikkaði ekki á skoti í dag og endaði með fimm mörk. Holstebro í fínum málum í deildinni og svo gott sem öruggir í topp átta. Að lokum unnu Skanderborg heimasigur á Nordsjælland, 28-22 þar sem Kristján Örn Kristjánsson, Donni var mættur aftur í lið heimamanna, hann lét þó lítið að sér kveða í dag en hann skoraði eitt mark úr fjórum skotum og gaf eina stoðsendingu. Í Noregi héldu Elverum áfram sínu striki en þeir unnu öruggan útisigur á Runar, 27-38. Tryggvi Þórisson skoraði eitt mark úr tveimur skotum fyrir liðið sem er áfram á toppi deildarinnar og nálgast óðfluga deildarmeistaratitilinn. Það sama er upp á teningnum hjá Kristianstad en þeir nálgast deildarmeistaratitilinn en þeir unnu frábæran útisigur á Hammarby, 30-31. Liðið er núna fjórum stigum á undan Malmö sem eiga þó leik til góðan en aðeins tvær umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Einar Bragi Aðalsteinsson átti flottan leik í Stokkhólmi fyrir gestina en hann skoraði sjö mörk úr ellefu skotum, gaf eina stoðsendingu og fékk að auki eina brottvísun og var næstbesti maður liðsins. Úrslit dagsins: Ribe-Esbjerg 29-32 Aalborg Mors-Thy 37-38 TTH Holstebro Skanderborg 28-22 Nordsjælland Runar 27-38 Elverum Hammarby 30-31 Kristianstad

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.