Elías Már færir sig um set í Noregi
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Handknattleiksþjálfarinn, Elías Már Halldórsson færir sig um set í Noregi í sumar og hefur tekið við sem yfirþjálfari í afreksíþróttamenntaskólanum Wang í Hamar í Noregi þá verður hann einnig þjálfari varaliðs Storhamar í 1.deild kvenna en Storhamar Elite eru ríkjandi Noregsmeistarar og eru í dag í 2.sæti úrvalsdeildarinnar.

Liðið er með varalið í 1.deildinni og því liði mun Elías Már stjórna samhliða yfirþjálfara stöðunni hjá Wang Hamar.

Wang Hamar er einn þekktasti afreksíþróttamenntaskólinn í Noregi, þar sem nemendur sameina framhaldsskólanám og markvissa afreksíþróttaþjálfun. Skólinn er hluti af WANG-skólakerfinu sem sérhæfir sig í íþróttamenntun. Markmið skólans er að hjálpa nemendum að þróast bæði sem íþróttamenn og nemendur þannig að þeir geti annað hvort náð langt í íþróttum eða farið í háskólanám eftir útskrift.

Elías Már Halldórsson var ráðinn þjálfari karlaliðs Ryger Håndball í Stafangri fyrir þetta tímabil en illa hefur gengið hjá liðinu á tímabilinu. Liðið lék í næst efstu deild á síðustu leiktíð og hafnaði í 9. sæti. Þegar Elías Már var kynntur hjá félaginu var það gefið út að markmiðið væri að berjast um sæti í úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. Elías Már gerði tveggja ára samning við Ryger en nú er ljóst að hann verður aðeins eitt tímabil með liðið.

Ryger er á botni 1.deildarinnar sem telur fjórtán lið með tíu stig en tvö neðstu lið 1.deildarinnar falla beint niður í 2.deild. Liðin í 11. og 12. sæti fara í umspil um laust sæti.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top