Snorri tilkynnir loks hópinn á morgun
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska karla landsliðsins tilkynnir í hádeginu á morgun leikmannahóp sinn fyrir tvenna æfingaleiki gegn Svíum sem fara fram hér á landi dagana 19. og 21. mars.

Fyrri leikur þjóðanna fer fram í N1-höllinni á Hlíðarenda, heimavelli Vals og seinni leikurinn fer fram í Kaplakrika heimavelli FH.

Í tilkynningu frá HSÍ sem send var fjölmiðlum fyrir helgi var sagt frá því að blaðamannafundur verði haldinn í höfuðstöðvum Arion banka í hádeginu á morgun. Auk þess sem Snorri Steinn mun þar tilkynna leikmannahóp sinn fyrir komandi verkefni þá verður einnig tilkynnt um verkefni landsliðsins í maí, undankeppnina fyrir EM 2028 og æfingaleiki íslenska landsliðsins í aðdraganda HM á næsta ári sem fram fer í Þýskalandi.

Tekið er fram að Snorri Steinn Guðjónsson og Björgvin Páll Gústavsson sitja fyrir svörum á blaðamannafundinum.

Gera má ráð fyrir að einhverjar breytingar verði á leikmannahópi íslenska landsliðsins í verkefninu gegn Svíþjóð frá Evrópumótinu í janúar. Bjarki Már Elísson og Elvar Örn Jónsson eru til að mynda báðir að glíma við meiðsli.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top