Ísland mætir Egyptalandi fjórum sinnum á næstu mánuðum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ísland mun halda til Egyptalands í maí og spila þar tvo æfingaleiki gegn heimamönnum, 13., og 15. maí. Báðar þjóðir eru komnar á heimsmeistaramótið í janúar á næsta ári sem fram fer í Þýskalandi en á sama tíma fara fram leikir í forkeppni heimsmeistaramótsins.

Snorri segir að hann horfi á þessa leiki til að prófa hluti, bæði taktíkst og til að prófa nýja leikmenn. Þetta sagði hann á blaðamannafundi sem HSÍ hélt í hádeginu þar sem þessir æfingaleikir voru kynntir auk landsliðshópsins sem mætir Svíum í æfingaleikjum hér á landi í næstu viku.

Ísland fær svo egypska landsliðið hingað til lands næsta janúar í undirbúningi sínum fyrir HM 2027. Liðin munu mætast í tveimur leikjum, dagama 7., og 9. janúar.

Snorri Steinn hafði þetta að segja um heimsókn Egyptalands: ,,Ég tel að áhuginn verði töluverður og þetta er frábært fyrir alla að fá loksins leiki í janúar heima áður en við förum á HM.”

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top