Heil umferð fer fram í Olís-deild karla í kvöld þegar næst síðasta umferðin verður leikin. Fara allir leikirnir fram klukkan 19:30 en leikur KA og FH verður sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans en allir hinir fimm leikirnir verða sýndir í Handboltapassanum. Fyrir umferðina í kvöld er Valur á toppi deildarinnar með 30 stig en FH er með 29 stig í 2.sætinu. Haukar eru í 3.sæti og KA í 4.sætinu með 26 stig. Valur gætu tryggt sér deildarmeistaratitilinn í kvöld en til þess þarf félagið að vinna HK á heimavelli og treysta á hagstæð úrslit í öðrum leikjum. Hvað þarf að gerast svo Valur verði deildarmeistari í kvöld? Spennan á botninum er ekkert minni en tvö lið eiga ennþá möguleika á að falla í Grill66-deildina. Það eru einmitt liðin sem mætast í Skógarselinu í kvöld, ÍR og Stjarnan. ÍR er á botni deildarinnar með sjö stig en Stjarnan er í 11.sætinu með 10 stig. ÍR á enn tölfræðilegan séns á að ná Selfoss eða Þór að stigum en liðið stendur verra að vígi gegn þeim báðum í innbyrðisstöðu liðanna svo það myndi ekki duga ÍR. Hvað þarf að gerast vo ÍR falli í kvöld? Ótrúleg staða gæti komið upp í deildinni eftir lokaumferðina en ef ÍR vinnur Stjörnuna í kvöld og myndi síðan vinna FH í lokaumferðinni þá færi ÍR í 11 stig. Ef Stjarnan myndi gera jafntefli við Fram í lokaumferðinni og Þór og Selfoss myndu ekki fá stig í síðustu tveimur leikjum sínum í deildinni þá myndu öll fjögur neðstu lið deildarinnar enda með 11 stig. Handkastið hefur ekki kafað í þá útreikninga að sjá hvort liðið myndi standa verst að vígi þar. Fyrst ætlar Handkastið að stilla á Handboltapassann í kvöld og fylgjast með öllum leikjum kvöldsins áður en farið er að spá lengra.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.