Grótta fór í Hafnarfjörðinn í kvöld og heimsóttu þar ÍH í næst síðustu umferð Grill66-deildarinnar en Grótta er í baráttu um 1.sætið við Víking en liðin eru jöfn að stigum en Víkingur með betri innbyrðis stöðu. ÍH byrjuðu betur og voru meðal annars yfir 10-7 en í stöðunni 12-12 þá gáfu gestirnir í og voru skyndilega komnir í 13-18. Staðan í hálfleik var 16-23 Gróttu í vil. Gestirnir héldu áfram uppteknum hætti í seinni hálfleik og uppskáru að lokum níu marka sigur 32-41. Atli Steinn Arnarsson var markahæstur í liði Gróttu með átta mörk og Sæþór Atlason skoraði sex mörk. Hannes Pétur Hauksson varði ellefu skot í marki Gróttu. Hjá ÍH var Benedikt Elvar Skarphéðinsson atkvæðamestur með níu mörk, Brynjar Narfi Arndal og Hákon Ingi Garðarsson skoruðu fimm mörk hvor. Kristján Rafn Oddsson var með 16 varin skot í marki ÍH. ÍH er í næst neðsta sæti deildarinnar með átta stig en Grótta er áfram í 2.sætinu með 38 stig fyrir lokaumferðina. ÍH á reyndar síðan leik eftir gegn HBH sem var frestaður á dögunum. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.