Selfoss 2 og Haukar tvö mættust á Selfossi í dag í leik sem var að ljúka í Grill66 deild karla en um var að ræða leik sem skipti litlu máli fyrir liðin en ein umferð er eftir af deildinni. Selfoss 2 siglir lignan sjó um miðja deild á meðan Haukar eru í fjórða sæti deildarinnar og eiga ekki möguleika á að fara upp. Staðan í hálfleik var 19-19. Selfoss 2 mætti vel gírað inn í síðari hálfleikinn og var liðið þremur mörkum yfir þegar fjórar mínútur voru eftir af leiknum en Haukum tókst að koma til baka og tryggja stig á Selfossi og lokatölur 35-35. Atkvæðamestur í liði Selfossar var Ragnar Hilmarsson en hann skoraði tíu mörk í dag. Aron Leo Guðmundsson skoraði sjö og aðrir minna. Atkvæðamestur í liði gestanna var Jón Karl Einarsson en hann skoraði tíu mörk í kvöld. Daníel Wale Adeleye skoraði þá níu og aðrir minna. Leikurinn hefst klukkan 19:00. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.