Víkingur í bílstjórasætinu fyrir lokaumferðina
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Víkingur er einum sigri frá því að tryggja sér sæti í Olís-deildinni eftir 16 marka sigur á Hvíta riddaranum í síðasta heimaleik liðsins í vetur. Víkingur vann 39-23 sigur og er í bílstjórasætinu fyrir lokaumferðina í Grill66-deildinni sem fer fram á laugardaginn.

Víkingur og Grótta eru jöfn að stigum með 38 stig en eitt lið vinnur sig beint upp í Olís-deildina. Víkingur stendur betur að vígi innbyrðis eftir leiki liðanna á tímabilinu.

Þorfinnur Máni Björnsson var markahæstur í liði Víkings með sjö mörk og Jóhann Reynir Gunnlaugsson skoraði sex mörk en um var að ræða kveðjuleik hans á heimavelli en hann mun ekki leika með Víkingum á næstu leiktíð og gera má ráð fyrir því að handboltaskórnir hans fara á hilluna í sumar. Ásgeir Snær Vignisson kom næstur með fimm mörk.

Hjá Hvíta riddaranum var Gísli Rúnar Jóhannsson markahæstur með níu mörk en hann er að koma til baka eftir langvarandi bakmeiðsli. Haukur Guðmundsson og Adam Ingi Sigurðsson skoruðu fjögur mörk hvor.

Víkingar buðu upp á flugeldasýningu í fyrri hálfleik. Liðið skoraði fimm fyrstu mörk leiksins og voru 11-3 yfir eftir 13 mínútur. Heimamenn voru ellefu mörkum yfir í hálfleik 20-9. Víkingur náði mest 19 marka forystu í stöðunni 38-19 en eins og fyrr segir urðu lokatölur 39-23.

Víkingur heimsækir Hauka 2 í lokaumferðinni á laugardaginn og geta með sigri tryggt sér sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð en tvö tímabil eru síðan Víkingur léku síðast í Olís-deildinni. Illa hefur gengið hjá félaginu að festa sig í sessi í deild þeirra bestu en með tilkomu Aðalsteins Eyjólfssonar sem þjálfara liðsins er fyrir síðustu leiktíð er mikill uppgangur í starfinu hjá Víking.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top