Fram 2 reyndust sterkari aðilinn undir lokin
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Fram 2 vann fjögurra marka sigur á neðsta liði Grill66-deildar karla, HBH í 21.umferð deildarinnar á heimavelli í kvöld. Lokatölur 32-28 Fram 2 í vil en staðan var jöfn í hálfleik 16-16.

Leikurinn var í járnum allt þar til í stöðunni 21-20 en þá skoruðu Fram 2 tvö mörk í röð og komust í 23-20. Heimamenn héldu forskotinu út allan leikinn og uppskáru fjögurra marka sigur að lokum.

Max Emil Stenlund og Gabríel Jónsson Kvaran voru markahæstir í liði Fram 2 með sex mörk hvor. Agnar Daði Einarsson skoraði fimm mörk fyrir Fram 2. Garpur Druzin Gylfason varði 12 skot í marki Fram 2. Hjá HBH var Heimir Halldór Sigurjónsson markahæstur með sex mörk og línumennirnir Bergvin Haraldsson og Hinrik Hugi Heiðarsosn skoruðu fimm mörk hvor fyrir HBH.

Gabríel Ari Davíðsson var með 11 varin skot í marki HBH og Helgi Þór Adolfsson varði fimm skot.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top