Eftir jafnan fyrri hálfleik keyrðu Valsarar yfir Selfoss í seinni hálfleik
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Í kvöld mættust Valur 2 og Selfoss 2 í Grill 66 deild karla en leikið var á Hlíðarenda.

Valsmenn stilltu upp hörkuliði og voru m.a Daníel Montoro og Dagur Leó Fannarsson báðir að spila.

Fyrri hálfleikur var mjög jafn og skemmtilegur og skiptust bæði lið á að hafa forskotið. Miklar sveiflur og sviptingar voru í hálfleiknum. Í hálfleik var svo staðan 18-16 fyrir heimamenn í Val.

Í seinni hálfleik tóku svo Valsmenn heldur betur við sér og settu í auka gír. Var þetta aldrei spurning í seinni hálfleik. Þeir keyrðu yfir Selfyssingana á löngum köflum og sáu gestirnir aldrei til sólar. Mest náðu þeir 13 marka forskoti. Endaði leikurinn 39-27 fyrir heimamenn í Val.

Hjá Val var Dagur Leó Fannarsson markahæstur með 11 mörk. Markvarslan skilaði þeim 14 boltum.

Hjá Selfossi var Aron Leo Guðmundsson markahæstur með 11 mörk. Markvarslan skilaði þeim 11 boltum vörðum.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top