Óvíst hvort Petar verði með gegn Val
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Markvörður ÍBV, Petar Jokanovic var ekki í leikmannahópi ÍBV í fyrradag þegar liðið vann eins marks sigur gegn Íslandsmeisturum Fram í 21.umferð Olís-deildarinnar, 26-27.

Tveir af efnilegri markvörðum landsins þeir Morgan Goði Garner og Sigurmundur Gísli Unnarsson stóðu í marki ÍBV í leiknum og vörðu samtals tíu skot.

ÍBV fær efsta lið deildarinnar Val í heimsókn á fimmtudagskvöldið í lokaumferðinni og sagði Petar í samtali við Handkastið að það þyrfti að koma í ljós þegar nær dregur leiknum hvort hann yrði verði orðinn leikfær.

Um er að ræða bakmeiðsli sem hann varð fyrir á æfingu daginn fyrir leikinn gegn Fram en Petar segist vera í meðhöndlun hjá sjúkraþjálfara liðsins. ,,Í sannleika sagt þá gat ég ekki stigið í fótinn í gær en er orðinn aðeins betri í dag. Við verðum bara að sjá til, ég get ekki sagt 100% til um það hvort ég verði með í leiknum á fimmtudaginn," sagði Petar í samtali við Handkastið.

ÍBV er í 4.sæti deildarinnar með 27 stig en KA er stigi á eftir ÍBV með 26 stig og Afturelding er í 6.sætinu með 25 stig. Valur getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn með sigri í Eyjum á fimmtudaginn.

Í gær fjölluðum við um meiðsli Dags Arnarssonar og Andra Erlingssonar liðsfélaga Petars sem einnig eru að glíma við meiðsli. Dagur glímir við tognun og Andri er óbrotinn.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top