Grétar Ari Guðjónsson leikmaður Hauka í Olís-deild karla var ekki með Haukum í sigri liðsins gegn Selfossi í gær í 21.umferð deildarinnar. Haukar unnu sjö marka sigur 35-27 eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik 15-14. Það vakti athygli að Grétar Ari Guðjónsson var ekki í leikmannahópi Hauka í leiknum en Aron Rafn Eðvarðsson sneri til baka í leikmannahóp Hauka í leiknum en hann hefur misst af öllum leikjum Hauka á þessu ári vegna höfuðhöggs sem hann hlaut á æfingu með liðinu í lok janúar. Aron Rafn átti frábæra innkomu í leiknum og varði öll þrjú vítaskotin sem hann fékk á sig og var með 100% markvörslu í leiknum. Annars stóð Magnús Gunnar Karlsson vaktina í marki Hauka og var með 11 varin skot, 28% markvörslu. Gunnar Magnússon þjálfari nýkrýnda bikmarmeistara Hauka sagði í samtali við Handkastið að ástæða fyrir fjarveru Grétars Ara væri einföld. Grétar hafi verið í Grikklandi að til að klára flutninga og allt sem því fylgir en Grétar Ari gekk í raðir Hauka í lok janúar eftir að hafa leikið í Grikklandi fyrir áramót og þar áður í nokkur ár í Frakklandi. Haukar sem eru í 3.sæti deildarinnar með 30 stig, stigi á eftir FH og tveimur stigum á eftir Val fara í Kórinn í lokaumferðinni og mæta þar HK. Gunnar sagði í samtali við Handkastið að Grétar Ari yrði kominn heim fyrir þann leik og myndi gera ráð fyrir því að Grétar myndi spila gegn HK á fimmtudaginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.