Enginn í leikbanni í lokaumferðinni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Tveir leikmenn fengu að líta rauða spjaldið í leikjunum sex sem fóru fram í 21.umferð Olís-deildar karla í gærkvöldi.

Fóru rauðu spjöldin bæði á loft í fallbaráttuslag ÍR og Stjörnunnar sem ÍR vann með með fjórum mörkum 30-26 og eru því einungis einu stigi á eftir Stjörnunni fyrir lokaumferðina en ÍR er á botni deildarinnar með níu stig.

Tandri Már Konráðsson leikmaður Stjörnunnar og Jökull Blöndal Björnsson fengu báðir rautt spjald í leiknum en hvorugur þeirra var úrskurðaður í bann á fundi aganefndar HSÍ í dag.

Brynjar Hólm Grétarsson fékk rautt spjald í þar síðustu umferð þegar Þór tapaði gegn Haukum í 20.umferðinni. Þar sem 21.umferðin fór fram áður en fundur aganefndar fór fram gat hann leikið með Þórsurum í sigrinum gegn Aftureldingu í gærkvöldi en Þórsarar biðu eftir fundi aganefndar í dag til að sjá hvort hann gæti leikið gegn KA á fimmtudaginn.

Aganefnd HSÍ ákvað að úrskurða Brynjar Hólm ekki í leikbann og verða því engir leikmenn í Olís-deild karla í leikbanni þegar lokaumferðin fer fram á fimmtudagskvöldið.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top