24.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar lauk í gær þegar Göppingen sigraði Eisenach. Magdeburg er á toppi deildarinnar með 44 stig en Flensburg er með 39 stig í 2.sætinu. 25.umferðin í þýsku úrvalsdeildinni hefst á föstudaginn er þrír leikir fara fram. Daikin Handbdall gaf út lið umferðarinnar sem lítur svona út. Julian Buchele(Göppingen) Julian Buchele markvörður Frich Auf Göppingen átti góðan leik er lið hans vann Eisenach. Julian varði 12 skot sem samsvaraði 42,6% hlutfallmarkvörslu. Samuel Zehnder(Lemgo Lippe) Vinstra hornarmaðurinn Samuel Zehnder átti fínan leik er Lemgo tapaði gegn Gummersbach með einu marki. Zehnder skoraði 6 mörk í leiknum. Lasse Møller(Flensburg) Lasse Møller vinstri skytta Flensburg og danska landsliðsins átti góðan leik er Flensburg sigraði Leipzig. Lasse átti fínan leik þar sem hann skoraði 7 mörk og gaf 2 stoðsendingar. Marko Grgic(Flensburg) Marko Grgic átti góðan leik fyrir lið sitt Flensburg er þeir sigruðu Blæ Hinriks og félaga í Leipzig. Marko skoraði 9 mörk og gaf 1 stoðsendingu. Viggó Kristjánsson(Erlangan) Viggó Kristjánsson átti stórbrotin leik er lið hans Erlangan sigraði Minden á heimavelli. Viggó skoraði 16 mörk auk þess að hafa gefið 2 stoðsendingar í leiknum. Jakob Nigg(Stuttgart) Jakob Nigg átti góðan leik er lið hans Stuttgart sigraði THW Kiel. Jakob skoraði 7 mörk úr 7 skotum í leiknum. Johannes Golla(Flensburg) Johannes Golla átti góðan leik fyrir lið sitt Flensburg er þeir sigruðu Blæ Hinriks og félaga í Leipzig. Golla skoraði 6 mörk úr jafn mörgum tilraunum í leiknum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.