Þriðja síðasta umferðin í Olís-deild kvenna fer fram í dag þegar heil umferð verður leikin. Sara Dögg Hjaltadóttir er markahæsti leikmaður deildarinnar með 172 mörk, 30 mörkum meira en næsti leikmaður sem er Sandra Erlingsdóttir leikmaður ÍBV. Haukar og ÍBV mætast á Ásvöllum í fyrsta leik dagsins sem hefst klukkan 13:00 og á Selfossi mætast botnliðin, Selfoss og Stjarnan klukkan 14:00. Valur og Fram mætast klukkan 15:00 og klukkan 15:15 mætast ÍR og KA/Þór. Handkastið hefur tekið saman markahæstu leikmenn Olís-deildarinnar eftir 18.umferðina:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.