Þrjú lið geta orðið deildarmeistari í kvöld þegar lokaumferðin í Olís-deild karla fer fram klukkan 19:30. Valur stendur best að vígi í baráttunni um deildarmeistaratitilinn á toppi deildarinnar með 32 stig. FH er í 2.sæti með 31 stig og Haukar er í 3.sæti deildarinnar með 30 stig. Valur fer til Vestmannaeyja og mætir ÍBV. FH fær botnlið ÍR í heimsókn og Haukar fara í Kópavoginn og mæta þar HK sem er í baráttu um síðasta lausa sætið í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Handkastið hefur tekið saman þær sviðsmyndir sem geta komið upp í baráttunni um deildarmeistaratitilinn í lokaumferðinni. Hvað þarf að gerast svo Valur verði deildarmeistari? Hvað þarf að gerast svo FH verði deildarmeistari? Hvað þarf að gerast svo Haukar verði deildarmeistari?

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.