Norðurlöndin: Sävehof áfram á sigurbraut
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Þrír leikir fóru fram í sænsku kvennadeildinni í kvöld og í gær og Drammen tapaði á heimavelli í norsku deildinni á sama tíma.

Drammen tók á móti Bergen í norsku úrvalsdeildinni í kvöld en gestirnir reyndust sterkari og unnu að lokum góðan fimm marka sigur, 31-36. Ísak Steinsson var í marki heimamanna meirihluta leiksins og átti vondan dag, hann varði aðeins fimm skot af þeim þrjátíu og þremur sem hann fékk á sig eða 15% markvarsla.

Í gærkvöldi fengu Kristianstad stóran skell í sænsku kvennadeildinni þegar þær mættu Höörs á heimavelli, lokatölur urðu 29-40 fyrir gestina. Berta Rut Harðardóttir átti erfitt uppdráttar en hún klikkaði á báðum skotum sínum og gaf eina stoðsendingu fyrir liðið. Tapið þýðir það að Kristianstad verða að vinna seinustu tvo leiki sína og treysta á að Skuru tapi seinasta leiknum sínum ef liðið ætlar að ná inn í úrslitakeppnina.

Tveir aðrir leikir fóru fram í kvöld en Sävehof hélt áfram á góðu skriði þegar liðið vann Boden á heimavelli, 29-25. Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði sex mörk úr ellefu skotum þar af þrjú mörk úr vítum og bætti við einni brottvísun. Sävehof var þegar búið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn og verður spennandi að sjá hvort þær ná að fara ennþá lengra og vinna meistaratitilinn að auki.

Skara unnu flottan útisigur gegn Hallby, 25-33 en Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði eitt mark úr tveimur skotum og gaf tvær stoðsendingar en Skara geta ennþá náð að enda í öðru sæti deildarinnar og endað vel fyrir úrslitakeppnina.

Úrslitin í kvöld og í gær:

Kristianstad 29-40 Höörs

Sävehof 29-25 Boden

Hallby 25-33 Skara

Drammen 31-36 Bergen

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top