Adam kynntur hjá Lübeck
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Á dögunum var Adam Thorstensen markvörður Stjörnunnar kynntur sem nýr markvörður Vfl Lübeck-Schwartau sem leikur í þýsku B-deildinni.

Handkastið hafði áður greint frá því að Adam hafi skrifað undir samning við félagið og gengur í raðir félagsins í sumar eftir sex tímabil hjá Stjörnunni en Adam er alinn upp í Breiðholtinu hjá ÍR.

Hjá Vfl Lübeck-Schwartau er Adami ætlað að fylla skarð Nils Conrad sem leikið hefur með félaginu síðustu sex tímabil en yfirgefið félagið í sumar. Conrad gengur í raðir Eintracht Hildesheim í sumar.

Þegar ellefu umferðir eru eftir af þýsku B-deildinni er félagið í 10.sæti deildarinnar með 23 stig, jafn mörg stig og Huttenberg sem er í 9.sætinu. Segja mætti að félagið sigli lygnan sjó um miðja deild og hvorki í baráttu um sæti í efstu deild né í hættu á að falla.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top