Enn óljóst með þátttöku Hafdísar á morgun
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Anton Rúnarsson þjálfari kvennaliðs Vals segir að ákvörðun verði tekin á morgun hvort að Hafdís Renötudóttir markvörður liðsins verði með liðinu gegn Fram á morgun í 19.umferð Olís-deildar kvenna.

Hafdís Renötudóttir fékk höfuðhögg í landsleik Íslands gegn Svartfjallalandi í síðustu viku og þurfti í kjölfarið að draga sig úr landsliðshópnum og var ekki með liðinu í seinni leik liðsins gegn Svartfjallalandi um síðustu helgi vegna höfuðhöggsins.

Anton sagði í samtali við Handkastið í gær að Hafdís væri ekki enn byrjuð að æfa með liðinu en staðan yrði tekin dag frá degi. Hún væri reglulega hjá sjúkraþjálfara og hún væri að verða betri með hverjum deginum.

,,Það þarf bara taka stöðuna frá degi til dags. Hún er á batavegi en hvort hún geti spilað á morgun eða leikinn eftir það eða jafnvel ekkert í deildinni verður að koma bara í ljós," sagði Anton í samtali við Handkastið en þrjár síðustu umferðir Olís-deildar kvenna fara fram á næstu átta dögum.

Valur er á toppi Olís-deildarinnar með 32 stig en ÍBV er í 2.sætinu með 30 stig.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top