Lokaumferð Olísdeildar karla fer fram í kvöld, en allir sex leikir umferðarinnar fara fram á sama tíma, klukkan 19:30. Öll lokaumferðin verður í opinni dagskrá á Sjónvarpi Símans. Áhorfendur fá því atvik í beinni frá öllum leikjum kvöldsins. Meginfókus útsendingarinnar verður á þeim þremur liðum sem geta orðið deildarmeistarar í kvöld. Það eru Valsmenn, sem leika í Vestmannaeyjum, Haukar sem leika í Kórnum og FH sem mætir ÍR í Kaplakrika. Öll þessi þrjú lið geta hreppt deildarmeistaratitilinn. Valsmenn eru á toppi deildarinnar með 30 stig, FH situr þar fyrir neðan með 29 stig og Haukar með 28. ,,Við hvetjum alla til að stilla inn á Sjónvarp Símans klukkan 19:30 þegar lokaumferðin fer í gang og upplifa handboltaveislu eins og hún gerist best,” segir í frétt HSÍ. Lokaumferðin í kvöld: Stjarnan – Fram
HK – Haukar
ÍBV – Valur
Þór – KA
Selfoss – Afturelding
FH – ÍR

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.