Framtíðarmaður framlengir í Kórnum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Styrmir Hugi Sigurðarson leikmaður HK í Olís-deild karla hefur framlengt samningi sínum við félagið til tveggja ára. Þetta kemur fram á samfélagsmiðlum HK nú rétt tæpum tveimur tímum fyrir síðasta leik liðsins í Olís-deild karla á þessu tímabili.

HK tekur á móti Haukum í lokaumferðinni og gæti með hagstæðum úrslitum tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins, annað árið í röð undir stjórn Halldórs Jóhanns Sigfússonar.

,,Einn af okkar efnilegustu leikmönnum, Styrmir Hugi Sigurðarson, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við HK. Það er mikið fagnaðarefni og ríkir mikil ánægja innan félagsins með að Styrmir haldi áfram sinni þróun sem leikmaður í búningi HK. Framtíðin er björt og það verður spennandi að sjá Styrmi taka sín næstu skref í handboltanum með HK á komandi árum," segir í tilkynningunni frá HK.

Styrmir Hugi hefur leikið 18 leiki með HK í Olís-deildinni í vetur og skorað fimm mörk.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top