Norðurlöndin: Kristianstad hikstaði í toppbaráttunni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Rétt eins og Íslandi er lítið eftir af hefðbundinni deildarkeppni á Norðurlöndunum en tvö Íslendingalið áttu leik í Svíþjóð og eitt í Danmörku í kvöld.

Kristianstad missteig sig í toppbaráttunni í Svíþjóð þegar liðið fékk Helsingborg í heimsókn, gestirnir sem eru í harðri baráttu um að forðast umspil um fall bitu frá sér og tóku bæði stigin með sér heim, lokatölur urðu 32-33 sem þýðir að Kristianstad verður að vinna Skövde á útivelli í lokaumferðinni eða treysta á það að Malmö tapi stigi í öðrum af sínum seinustu tveimur leikjum til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í Svíþjóð. Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði fjögur mörk úr fimm skotum og gaf tvær stoðsendingar fyrir liðið.

Í hinum leik kvöldsins tóku Sävehof á móti Skövde en þar reyndust gestirnir of sterkir og sóttu sigurinn, lokatölur 28-31. Birgir Steinn Jónsson kom lítið við sögu hjá heimamönnum sem sitja áfram í fimmta sæti deildarinnar.

TTH Holstebro vann góðan heimasigur á Bjerringbro-Silkeborg í dönsku deildinni í kvöld, 36-33. Jóhannes Berg Andrason skoraði fjögur mörk úr sex skotum fyrir heimamenn sem eru öruggir í úrslitakeppnina en þeir sitja í sjötta sæti deildarinnar og geta ennþá náð upp í fjórða sætið.

Úrslit kvöldsins:

Kristianstad 32-33 Helsingborg

Sävehof 28-31 Skövde

TTH Holstebro 36-33 Bjerringbro-Silkeborg

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top