Rándýrt tapað stig hjá KA
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Það var Akureyrarslagur í lokaumferð Olís-deildar karla á fimmtudagskvöldið þegar Þór og KA mættust í Höllinni á Akureyri fyrir framan troðfulla áhorfendastúku af stuðningsmönnum beggja liða.

Mikið var undir hjá báðum liðum fyrir leikinn, KA hefði með sigri og hagstæðum úrslitum úr leik ÍBV og Vals getað farið upp í 4.sætið og tryggt sér heimavallaréttinn í 8-liða úrslitunum og á sama tíma hefði Þór getað farið í úrslitakeppnina með sigri og hagstæðum úrslitum úr leik HK og Hauka.

Úrslitin urðu hinsvegar óhagstæð Þórsurum í leik HK og Hauka og því skipti leikurinn þá ekki miklu máli nema í raun bara stoltið. Úrslitin í leik ÍBV og Vals voru KA mönnum hinsvegar hagstæð og hefði sigur komið þeim upp í 4.sætið. Það skipti þó engu því leikurinn endaði með jafntefli 31-31 eftir að Brynjar Hólm Grétarsson skoraði jöfnunarmark leiksins fyrir KA nokkrum sekúndum fyrir leikslok.

Rætt var um jöfnunarmarkið og leikinn í uppgjörsþætti Handkastsins fyrir helgi.

,,Brynjar Hólm skoraði lokamark leiksins, jafnar metin og tekur heimavallaréttinn af KA gegn ÍBV sem KA hefði líklega alveg þegið ef 8-liða úrslitin fara í oddaleik," sagði Stymmi Klippari.

Einar Ingi Hrafnsson sem var gestur í Handkastinu tók undir orð Klipparans.

,,Þór tók leikhlé, þegar rúmlega 20 sekúndur voru eftir og það voru allir leikir búnir og þetta var síðasti leikurinn sem var enn í gangi. KA hefði átt að vera með það á hreinu hvernig staðan var í öðrum leikjum, KA hefði átt að vera með það á hreinu að þeir hefðu þurft sigur. Andri Snær virtist ekki vera tilbúinn að taka leikhlé eftir að Brynjar Hólm skorar þegar fimm sekúndur eru eftir. Andri Snær neyðist til að taka sprettinn á hliðarlínunni og nær í rauninni ekki að taka leikhlé.”

,,Sögulínan í þessum leik er rándýrt tapað stig hjá KA," sagði Arnar Daði við áður en Klippari bætti við:

,,Það gæti reynst dýrt. KA - ÍBV er einvígi sem ég gæti séð fara í oddaleik.”

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top