Í kvöld mættust Hvíti Riddarinn og ÍH í Myntkaup höllinni í Grill 66 deild karla. Fyrripartur fyrri hálfleiks var mjög jafn og liðin bæði að gera vel. Seinna korterið í fyrri hálfleik voru svo Riddararnir hvítu mun betri og sterkari aðilinn. Á köflum voru þeir að leika frábærlega vel. Staðan í hálfleik var 18-13 fyrir heimamenn. Í seinni hálfleik náði Hvíti Riddarinn mest 9 marka forskoti og voru ÍH-ingar enginn veginn að finna taktinn. Margir voru að leggja í púkkið hjá Hvíta Riddaranum og þeir að leika vel. Hjá ÍH var Brynjar Narfi Arndal í algjörum sérflokki eins og svo oft áður. Lokatölur leiksins urðu 34-29. Sanngjarn sigur hjá heimamönnum. Hjá ÍH var Brynjar Narfi Arndal markahæstur með 14 mörk. Kristján Rafn Oddsson varði 10 skot. Hjá Hvíta Riddaranum var Gísli Rúnar Jóhannsson markahæstur með 9 mörk. Sigurjón Bragi og Bergvin Snær vörðu samtals 13 skot. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.