Víkingur komnir upp í Olís deildina – Til hamingju Víkingar
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Í dag mættust Haukar 2 og Víkingur á Ásvöllum í Grill 66 deild karla.

Með sigri hjá Víking þá var það ljóst að þeir myndu fara beint upp í Olís deildina.

Leikurinn var mjög jafn og spennandi í fyrri hálfleik og voru Hauka menn lengi vel yfir. En síðustu mínúturnar í fyrri hálfleik voru Víkingar betri og voru yfir í hálfleik 18-20.

Í seinni hálfleik héldu Víkingar áfram í bílstjórasætinu og komust 5 mörkum yfir eftir korter. Haukamenn saumuðu svo þétt og vel að Víkingum síðustu mínúturnar en allt kom fyrir ekki og Víkingar kláruðu leikinn. Sanngjarn sigur á endanum. 34-36 urðu lokatölur fyrir gestina úr Safamýrinni.

Víkingar eru því komnir beint upp í Olís deildina og óskar Handkastið þeim innilega til hamingju með það.

Hjá Víking var Ásgeir Snær Vignisson markahæstur með 11 mörk. Daði Bergmann varði 12 skot.

Hjá Haukum var Birkir Snær Steinsson markahæstur með 8 mörk og Ari Dignus Maríuson varði 11 skot.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top