Lokahóf HSÍ snýr aftur
Egill Bjarni Friðjónsson

Lokahóf HSÍ verður haldið laugardaginn 30. maí í Austurbæjarbíó en lokahóf HSÍ hefur ekki verið haldið síðan fyrir heimsfaraldurinn Covid-19.

Í lýsingunni um viðburðinn sem finna má í miðasöluforritinu Stubbur er sagt að húsið opni 19:30 en veislan hefjist svo 20:00.

Við stutta leit Handkastsins á veraldarvefnum virðist sem svo að síðasta lokahóf HSÍ hafi verið haldið á Gullhömrum árið 2018 en lokahóf HSÍ var árlegur viðburður þar sem handboltafólk, þjálfarar og sjálfboðaliðar mættu og gerðu upp tímabilið og skemmtu sér sumir fram eftir morgni.

,,Stútfull dagskrá er í vændum," segir í lýsingu á viðburðinum sem finna má á Stubbur appinu.

Miðaverð á lokahóf HSÍ er ekki nema 13.990 krónur.

Hér má sjá mynd af Alexander Erni Júlíussyni fyrrum leikmanni Vals á lokahófi HSÍ árið 2015.

Tanja Rut leikmaður ÍR lét sig ekki vanta á sama lokahóf

Aníta Mjöll byrjaði partýið snemma árið 2012

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top