Jóhann Reynir leggur skóna á hilluna
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Jóhann Reynir Gunnlaugsson hefur ákveðið að leggja handboltaskóna á hilluna en hann var hluti af Víkingsliðinu sem tryggði sér sæti í Olís-deildinni á næsta tímabili eftir sigur á Haukum 2 um helgina.

Jóhann Reynir skoraði tvö mörk í sínum síðasta leik á ferlinum er Víkingur vann Hauka 2 33-31 sem gulltryggði þeim sigur í Grill66-deildinni og þar með sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð.

Jóhann Reynir sem er uppalinn hjá Víking kom aftur heim eftir þrjú ár hjá Gróttu fyrir tímabilið 2021/2022 en það tímabil féll hann með félaginu niður í Grill66-deildina og sömu sögu er að segja frá tímabilinu 2023/2024. Liðinu mistókst að vinna sér aftur sæti í Olís-deildinni á síðustu leiktíð en tókst ætlunarverk sitt nú á laugardaginn.

Jóhann Reynir lék sinn síðasta heimaleik fyrir Víking í síðustu viku fyrir leik gegn Hvíta riddaranum þar sem honum var veittur blómvöndur fyrir framlag sitt hjá félaginu.

Stórskyttan Jóhann Reynir Gunnlaugsson samdi við Gróttu í Olís-deild karla fyrir tímabilið 2018/2019 eftir veru sína í Danmörku hjá Randers og Lemvig. Hjá Gróttu féll Jóhann Reynir með liðinu á sínu fyrsta tímabili en hann var lykilmaður í liði Gróttu sem vann sig aftur upp í Olís-deildina ári síðar.

Jóhann Reynir er uppalinn Víkingur og spilaði þar fyrstu ár ferilsins í tveimur efstu deildum Íslandsmótsins en hann fór svo til Danmerkur og spilaði með Lemvig og nú síðast Randers. Þá lék Jóhann Reynir einnig með HK á ferlinum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top