Fimm Íslendingalið áttu leik í Svíþjóð og Noregi í dag en hæst ber að nefna bikarúrslitaleik hjá Skara og svo var stórleikur Elverum og Kolstad í Noregi. Við byrjum í Svíþjóð en þar þurftu Skara að sætta sig við silfrið í sænska bikarnum kvenna megin þegar liðið tapaði í vítakastskeppni á móti Boden, lokatölur 33-32. Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir Skara en klikkaði í vítakastskeppninni. Titillinn er sá fyrsti í sögu Boden. Í bronsleiknum tapaði Kristianstad fyrir Höörs, lokatölur 32-20 en Berta Rut Harðardóttir skoraði fjögur mörk fyrir Kristianstad. Í Noregi fór fram risaleikur þegar Elverum tók á móti Kolstad, þetta var í raun seinasti séns Kolstad að eygja möguleika á deildarmeistaratitlinum en liðið var fjórum stigum á eftir Elverum fyrir leik dagsins. Noregsmeistararnir sýndu mátt sín og gæði og unnu nauman tveggja marka sigur, 24-26. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði fjögur mörk úr sjö skotum, Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði þrjú mörk úr sjö skotum og Sigurjón Guðmundsson átti flotta innkomu í markið og varði fimm skot af þeim sextán sem hann fékk á sig eða 31% markvarsla. Hjá heimamönnum skoraði Tryggvi Þórisson tvö mörk úr tveimur skotum. Drammen unnu góðan sigur á Nærbø, 33-29 en Ísak Steinsson átti erfitt uppdráttar í markinu en hann varði þrjú skot af þeim tólf sem hann fékk á sig eða 25% markvarsla áður en hann var tekin af velli. Úrslit dagsins: Boden 33-32 Skara Kristianstad 20-32 Höörs Elverum 24-26 Kolstad Drammen 33-29 Nærbø

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.