Reynir Þór Stefánsson er einn af tveimur nýliðum í Íslenska landsliðshópnum en Ísland undirbýr sig nú undir tvo æfingaleiki gegn Svíþjóð sem fara fram í þessari viku. Reynir Þór Stefánsson var spurður út í hvort valið hafi komið honum á óvart og hann segir að þetta sé það sem hann hefur alltaf verið að stefna að. ,,Maður er búin að stefna að þessu og auðvitað vonaðist maður til að vera valinn en þetta kom alveg smá á óvart." Reynir Þór Stefánsson leikur með Melsungen í þýskalandi og hafa meiðsli sett strik í reiknginn hans og er Reynir nýlega komin af stað aftur ,,Þetta var mjög skrítið og virkilega erfitt að fá ekki að gera neitt, ég mátti ekki hlaupa eða neitt og þetta var krefjandi en maður hefur lært fullt af þessu og ég þurfti að þroskast mjög hratt og núna er maður komin á fullt og þetta er bara allt annað." ,,Félagið hjálpaði mér mjög mikið, þeir vildu að ég myndi taka mér þrjár vikur meira en að drífa mig eitthvað og fá mig á fullt frekar en að það komi eitthvað bakslag og verði eitthvað vesen." Reynir var spurður út í fyrsta árið sitt í Melsungen sem leikur í þýsku deildinni sem er sterkasta deild í heimi. ,,Þetta er allt miklu stærra og allt öðruvísi, alltaf fullt á öllum leikjum og áhorfendur mættir klukkutíma fyrir leik og þetta er bara geðveikt, miklu stærra og bara draumurinn. Þetta er stærsta sviðið í handsboltanum og mömnnum langar að vera þarna." Handkastið ræddi nánar við Reyni í sjónvarpinu hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.