Arnar Freyr Arnarsson er á sínu síðasta tímabili með þýska liðið Melsungen en hann yfirgefur félagið í sumar þegar samningur hans við félagið rennur út. Arnar Freyr gekk í raðir Melsungen fyrir tímabilið 2020 og er því á sínu sjötta tímabili með félaginu. Áður lék hann í Svíþjóð með Kristianstad og í Danmörku með GOG. Hann vildi lítið gefa hvar hann myndi leika á næstu leiktíð í viðtali við Handkastið á dögunum. ,,Staðan er góð og það mun vonandi eitthvað skýrast á næstu dögum hvað gerist. Það er ekkert staðfest í dag en það skýrist vonandi í þessari viku eða í næstu," sagði Arnar Freyr sem segir það löngu vitað að hann myndi yfirgefa Melsungen eftir tímabilið. ,,Það var planið. Ég ásamt félaginu ákváðum að þetta væri búið og ég verð í öðru félagi á næsta tímabili, það er 100%." Verður hann áfram í Þýskalandi? ,,Líklega.” En góð tímabil síðustu ár hefur gengið erfiðlega hjá Melsungen á þessu tímabili. Liðið er í 8.sæti deildarinnar með 28 stig, sjö stigum frá Gummersbach sem er í 5.sætinu sem gefur sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð. Melsungen hafa verið þátttakendur í Evrópudeildinni síðustu leiktíðir. ,,Þetta er búið að vera erfitt og margir meiddir. Við erum ekki beint með nýtt lið en margir nýir leikmenn að koma inn í þetta sem hafa verið meiddir lengi og þetta er smá taktlaust hjá okkur og við erum því búnir að vera í miklu brasi," sagði Arnar Freyr aðspurður út í tímabilið hjá liðinu. Arnar Freyr verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu í kvöld í Valsheimilinu þegar Ísland og Svíþjóð mætast í fyrri æfingaleik þjóðanna. Seinni leikurinn fer fram í Kaplakrika á laugardaginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.