Teitur Örn Einarsson er í landsliðshópi Íslands fyrir komandi leiki gegn Svíþjóð. Teitur Örn er skráður sem skytta í þessu verkefni. Handkastið ræddi við Teit Örn Einarsson á æfingu liðsins í morgun. ,,Þetta er svolítið mitt starf með þennan breiða hóp af örfhentum mönnum sem eru með þá þýðir ekkert annað en að vera klár í það sem þarf að leysa og þetta er bara ágætis staða sem ég er í og ég tek öllum tækifærum sem ég fæ." ,,Það er geggjað að fá svona gott lið hingað heim og gefa áhorfendum okkar hér heima séns á að mæta og sjá alvöru leiki og það er alltaf geðveikt að koma heim og hitta hópinn aftur og gaman að sjá mikið af ungum pjökkum sem fá að spreyta sig með okkur og ég er bara mjög spenntur fyrir vikunni og lýst vel á þessa leiki." Nánar var rætt við Teit Örn í spilaranum hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.