Uppselt á landsleikinn í Kaplakrika
{{brizy_dc_image_alt entityId=

,,Uppselt í Kaplakrika!" með þessum orðum hefst nýjasta færsla HSÍ á samfélagsmiðlum en íslenska karla landsliðið leikur tvo æfingaleiki gegn Svíþjóð hér á landi í vikunni.

Fyrri leikurinn fer fram í N1-höllinni að Hlíðarenda á fimmtudagskvöldið klukkan 19:30 en seinni leikurinn fer fram í Kaplakrika á laugardaginn klukkan 17:00. Uppselt er á síðari leikinn fyrir utan VIP miða sem eru enn til sölu.

,,Lausir miðar eru þó enn á fyrri leikinn á fimmtudaginn – en þeir fara hratt. Ekki missa af fyrsta leik strákanna okkar eftir EM,tryggðu þér miða meðan þeir eru enn lausir," segir ennfremur í tilkynningunni frá HSÍ.

Strákarnir mæta einnig í Smáralindina á morgun klukkan 16:30 og veita eiginhandaráritanir ✍️

Tryggðu þér miða á fyrri leikinn hér.

Tryggðu þér VIP miða á seinni leikinn hér.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top