Stiven tekur ákvörðun um framtíðina á næstu dögum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

,,Það er stemning og ég er ánægður að vera kominn til baka," sagði Stiven Tobar Valencia í viðtali við Handkastið á dögunum er hann mætti á fyrstu æfingu íslenska landsliðsins fyrir tvenna æfingaleiki gegn Svíþjóð sem fara fram hér á landi í vikunni.

Fyrri leikurinn fer fram í N1-höllinni að Hlíðarenda í kvöld klukkan 19:30 en sá seinni á laugardaginn klukkan 17:00 í Kaplakrika.

Stiven Tobar var ekki valinn í lokahóp Íslands fyrir Evrópumótið en hann var kallaður inn á heimsmeistaramótið fyrir ári síðan vegna meiðsla Bjarka Más.

,,Það er aðeins öðruvísi að vera heima og maður er meira stressaður ef eitthvað er heima. En ég var ánægður með strákana og ánægður með árangurinn sem þeir náðu á þessu stórmóti."

,,Skrokkurinn er góður. Það er búið að vera mikið álag síðustu vikur en ég er sprækur og tilbúinn  fyrir þessa tvo leiki sem við eigum gegn Svíþjóð. Ég hef verið að ferðast mikið síðustu vikur en ég er ánægður að komast heim og fá að spila þessa leiki hérna heima og einn í Valsheimilinu."

Stiven Tobar gekk í raðir Benfica í Portúgal frá uppeldisfélagi sínu Val sumarið 2023 og er því á sínu þriðja tímabili hjá Benfica. Samningur hans við félagið rennur út eftir tímabilið. Handkastið greindi frá því í febrúar að hann væri líklega á förum frá félaginu.

,,Við erum að skoða núna hvað hentar mér best. Það verða miklar breytingar á liðinu á næsta ári. Við erum að sjá hvað hentar mér og erum að skoða þetta á næstu dögum og sjá hvað kemur upp á borðið," sagði Stiven sem segist vera í viðræðum við Benfica um áframhaldandi samning.

,,Ég er líka í viðræðum við Benfica um að vera áfram og það er alveg jafn líklegt að ég verði áfram þar eins og að fara einhvert annað. Við höfum tækifæri til að spila í Meistaradeildinni á næstu leiktíð ef við náum 2.sætinu í deildinni og það væri geðveikt."

En hvernig hefur tími hans í Portúgal verið?

,,Þetta er skemmtileg deild en mætti vera sterkari. En við erum með Evrópudeildina sem er forréttindi sem gefur mikið. Tíminn í Portúgal hefur verið mjög skemmtilegur og ég hef fengið að spila mikið að undanförnu. Ég er búinn að vera mjög sáttur.”

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top