HK færist nær Olís deildinni eftir sigur í Krikanum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Í kvöld mættust FH og HK í Krikanum í Grill 66 deild kvenna en leikið var í Krikanum.

FH stelpur mættu hreinlega ekki til leiks í upphafi leiksins því eftir 10 mínútur var staðan 1-7 fyrir gestina úr Kópavoginum. Áfram hélt þetta á þessum nótum og eftir 20 mínútna leik var staðan 4-14. Gríðarlegir yfirburðir. Í hálfleik var staðan 8-19.

Í seinni hálfleik var það sama upp á teningunum. Eftir korter í fyrri hálfleik var staðan 14-24. Leikurinn endaði síðan 19-29 fyrir gestina í HK sem eru nú bara aðeins einum sigri frá því að komast beint upp í Olís deildina. FH stelpur náðu engan veginn að fylgja eftir góðum sigurleik um daginn og greinilega verið spennufall eftir þann óvænta sigur.

Hjá FH var Thelma Dögg Einarsdóttir markahæst með 9 mörk. Markvarslan skilaði þeim 9 boltum.

Hjá HK var Tinna Ósk Gunnarsdóttir markahæst með 7 mörk. Markvarslan skilaði þeim 9 boltum.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top